1.8.2011 | 20:06
Góð námskeið og frábær söngvakeppni
Dagur fimm var fjörugur og viðburðaríkur, eins og hinir fyrri. Boðið var m.a. upp á stenslagerð, námskeið í umhirðu húðar, það var tískusýning og söngvarakeppni ... bara dýrlegt alveg.
Eftir morgunverðinn var haldið út í sundlaug þar sem krakkarnir fóru í sund eða bara sturtu, fór eftir því hvað var fram undan, karaókiæfing og svona ...
Stenslagerð var í boði og þar var nú aldeilis gaman, mikið hugmyndaflug í gangi eins og sjá má betur á öllum myndunum á heimasíðunni (sumarbudir.is). Börnin stensluðu myndir eða settu á boli og þetta sló algjörlega í gegn.
Pasta með risastórum heimabökuðum hvítlauksbollum var í matinn í hádeginu. Alveg svakalega gott.
Eftir mat fannst krökkunum nú sérdeilis þægilegt að slaka aðeins á inni í herbergjum en innan skamms hófust hádegisfundirnar. Að þessu sinni var fjallað um það að standa með sjálfum sér, heiðarleika í eigin garð og annarra, vináttu, það að þora að segja nei og fleira. Þau drógu miða með jákvæðum staðhæfingum til að hafa með sér inn í framtíðina ...
Námskeiðin gengu eins og í sögu ... en kvikmyndagerðarhópurinn fór um víðan völl í tökum á stuttmyndunni sinni og rak m.a. sumarbúðastjórann út af skrifstofu sinni þar sem þurfti að taka nokkur skot þar. Þá vitum við a.m.k. um eitt atriði með vissu, eða skrifstofuatriði. Líklega verðum við að bíða eftir að vita allt um innihald hennar þegar myndin verður frumsýnd. Bæði krakkarnir á námskeiðinu, umsjónarmennirnir og sumarbúðastjórinn sem fékk að lesa handritið, neita að tjá sig um innihaldið. Dæs. Álíka dularfull eru börnin í íþróttahópnum, við teljum víst að sýningin þeirra verði algjört æði, þegar við höfum njósnað (með myndavél) virðist ríkja mikið fjör og miklir hæfileikar í gangi. Jamm, þetta kemur allt í ljós á lokakvöldvökunni.
Í kaffinu var nýbökuð sandkaka, ávextir og einnig vöffluafgangar frá fyrra degi. Allir saddir og sælir.
Eftir kaffi var hið árvissa unglingatímabilsnámskeið í umhirðu húðar og um almennt hreinlæti og fleira. Þarna var mikilvæg fræðsla um gott mataræði, að mála sig ekki of mikið og annað í þeim dúr. Kynntar voru sniðugar vörur, eins og sótthreinsandi bóluhyljari og létt sólarpúður sem er meira en nóg fyrir unga og fallega húð eins og unglingar eru með. Þátttakendur voru leystir út með gjöf (sjá mynd til hægri). Einnig var fjallað um skaðsemi áfengis og tóbaks á húðina, sem og heilann og líkamann, og hvernig gott væri að svara ef einhver vill endilega bjóða manni eitthvað sem maður vill ekki.
Þau sem vildu máttu prófa hreinsivörur (andlitsmjólk og -vatn, og sótthreinsistifti fyrir bólur). Nokkrar stelpur vildu fá að mála sig þar sem þær ætluðu að taka þátt í tískusýningu um kvöldið. Útkoman varð skemmtilega skrautleg, enda margir sniðugir augnskuggar og varalitir í boði. Skömmu fyrir kvöldmat fóru krakkarnir inn á herbergi til að gera sig enn fínni fyrir kvöldið.
Eldhúsið bauð upp á fisk með hrísgrjónum og karrísósu í kvöldmat, einnig voru tómatsósa og smjör í boði ... tómatsósan fyrir sanna sælkera, eins og einn strákurinn orðaði það.
Síðan hófst Ævintýrabarkinn, söngvara- og hæfileikakeppnin ... og tískusýning, takk fyrir.
Þátttakendur voru:
1) Eva María, Írena Líf, María Sif og Stefanía Veiga sungu lagið Komdu til baka (Kristmundur Axel og Júlí Heiðar)
2) Alexandra Diljá söng lagið Baby (Justin Bieber)
3) Stefanía Veiga sem var líka í atriði 1, söng lagið Ást (Ragnheiður Gröndal)
4) Sigurveig söng lagið Ég ætla að verða kóngur klár úr Lion King, og naut aðstoðar Alexöndru Bjargar
5) Alexandra Björg söng lagið Ástin opnar augun skær (Elton John, úr Lion King)
Allir þátttakendur stóðu sig frábærlega vel. Á meðan dómnefnd fór yfir stigin var haldin stórskemmtileg tískusýning.
Þær Alexandra Björg og Stefanía reyndust vera með flest stigin og nákvæmlega jafnmörg. Þær skiptu því fyrsta sætinu með sér og fengu báðar verðlaun. Allir sem tóku þátt fengu viðurkenningarskjal.
Í kvöldkaffinu var boðið upp á smurt brauð og safa.
Frábær dagur að baki og heilmikil tilhlökkun í gangi fyrir næsta degi ... lokakvöldvakan um kvöldið!!! Allt um það í næsta bloggi.
Myndir frá degi 5:
http://sumarbudir.is/sumarbudir/t8d5_2011.html
Um bloggið
Sumarbúðirnar Ævintýraland
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.