3.7.2010 | 01:20
Fyrsti dagur í rjómablíðu
Um tvöleytið í dag valhoppuðu nokkrir hressir umsjónarmenn út í blíðuna og hófu spennta bið eftir rútunni.
Veðrið var ekki bara gott, heldur frábært, fuglarnir sungu, flugurnar suðuðu, bökunarilmur barst úr eldhúsinu og blandaðist ilminum af nýslegnu grasinu ... allt var eins og best var á kosið í upphafi nýs tímabils. Bara stemmning.
Loks kom rútan með þessi líka hressu börn innanborðs. Byrjað var á því að taka farangurinn út úr og síðan heyrðist: Höfrungar, hvar eruð þið? og hluti barnanna fór til umsjónarmannsins síns ... og þannig gekk þetta þangað til allir voru komnir á réttan stað. Börnunum er skipt í aldursskipta hópa sem hver hefur sinn umsjónarmann alla vikuna. Ekki amalegt að eiga sér heila manneskju sem hægt er að leita til með stórt og smátt þótt allir séu auðvitað boðnir og búnir að hjálpa.
Farangrinum var komið fyrir inni í herbergi í einum hvelli án þess að taka upp úr töskum eða neitt þar sem fram undan var skoðunarferð um svæðið, hver hópur með sínum umsjónarmanni. Eftir það var hægt að koma sér almennilega fyrir og svo var bara komið að fyrsta kaffitímanum.
Skúffukaka, melónur og safi ... allt þetta rann ljúflega niður og eftir það þusti hópurinn út í íþróttahús þar sem námskeiðin voru kynnt - og einnig starfsfólkið. Í næstu færslu verður meira um námskeiðin í kvikmyndagerð, íþróttum, myndlist, dansi, grímugerð og því öllu saman. Svo völdu börnin sér líka álegg á brauðið í kvöldköffum vikunnar, einnig safategund en það er í boði til skiptis við ávexti. Alveg nauðsynlegt að fara ekki svangur í bólið. Sama hversu vel er borðað í kvöldmatartímanum er alltaf hægt að bæta við sig einhverju meira í kvöldkaffinu.
Nokkrar stöðvar voru opnaðar eftir þetta ... útisvæðið með leiktækjum, trampólíni, krítarstétt og svona, Spilaborgin með milljón spilunum, bókum, púslum, borðtennis, billjard o.fl. og svo stóra, flotta íþróttahúsið þar sem fjöldi leiktækja, dýna og annarra skemmtilegheita stóðu til boða. Valkvíði? Nei, nei, það var bara farið á milli og allt prófað eftir bestu getu. Heil vika fram undan svo sem.
Svo kom bara kvöldmaturinn, kjöt og spagettí og borðað af hinni bestu lyst.
Sundlaugin var í boði eftir kvöldmat og hluti barnanna nýtti sér að synda og stinga sér og slaka svo á í heita pottinum inn á milli. Mjög notalegt. Hin voru á útisvæðinu eða í Spilaborg.
Ávextir í kvöldkaffinu, svo háttað og burstað og síðan lásu umsjónarmennirnir fyrsta hluta kvöldsögunnar, hver fyrir sinn hóp. Ekki leið á löngu þar til flestir voru sofnaðir og hinir ekki svo löngu seinna.
Frábær og skemmtilegur hópur sem við hlökkum til að verja vikunni með og aldeilis nóg er af ævintýrunum fram undan.
Veðurspáin okkar á morgun: 16 stiga hiti, sól hluta dags, engin rigning. (www.yr.no)
Þangað til næst ... okkar allra, allra bestu kveðjur frá Kleppjárnsreykjum!
P.s. Hirðljósmyndari Ævintýralands var nokkuð duglegur við iðju sína og hér má sjá afraksturinn frá honum:
http://sumarbudir.is/sumarbudir/t4d1.html
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.7.2010 | 12:45
Ævintýra-lokakvöldvakan
Sjötti og síðasti heili dagurinn rann upp og var að sjálfsögðu skínandi bjartur og fagur. Eftir morgunverðinn var haldið á námskeiðin, enda bara nokkrir klukkutímar í lokakvöldvökuna. Danshópurinn æfði úti í íþróttahúsi þar sem sýningin fer fram. Tíminn leið hratt í öllum önnunum en allt gekk afar vel. Spenningurinn var hreinlega áþreifanlegur.
Í hádeginu var boðið upp á skyr og smurt brauð og svo var farið að pakka niður.
Þá var farið í enn meiri undirbúning fyrir lokakvöldvökuna en hluti barnanna skellti sér í gönguferð þar sem hægt var að vaða og það var ótrúlega gaman. Sjá myndir efst.
Í kaffinu var það sumarbúðasandkaka, melónur og tekex með heimalagaða marmelaðinu góða.
Í hverri viku fer fram ruslatínsla á síðasta deginum og þau börn sem bjóða sig fram fá ruslapoka sem þau tína í og svo er líka sópað. Innan skamms er umhverfið orðið hreint, eins og það hafi verið ryksugað og börnin fá alltaf smá þakklætisvott fyrir, litla gjöf að eigin vali úr verðlaunakassanum.
Útisvæðið var opið eftir kaffi, Spilaborgin og íþróttahúsið. Alls staðar mikið fjör.
Hátíðarstemmingin byrjaði svo fyrir alvöru rétt fyrir kvöldmat þegar allir fóru og skiptu um föt fyrir kvöldið. Síðan var haldið í matsalinn þar sem hátíðarkvöldverðurinn beið; hamborgarar, franskar, sósa og gos. Eldhúsfólkið var ekki beint á óvinsældalistanum ...
Kvöldvakan hófst á listaverkasýningu og sami hópurinn og skapaði listaverkin gerði einnig grímur og sýndi látbragðsleikritið Bíbí bjargar málunum ... svona Grísirnir þrír í ævintýraútgáfu.
Í stað úlfsins voru norn og tvö ljón sem reyndu að ræna grísunum því þau langaði svo í beikon ... Bíbí (fuglinn) kom og bjargaði málunum og í stað þess að nornin og ljónin gæddu sér á beikoni bjuggu Bíbí og grísirnir til djöflatertu úr norninni og ljónunum og borðuðu með bestu lyst. Snæfríður (ekki starfsmaðurinn) var sögumaður. Handritsgerðin var alfarið í höndum barnanna í hópnum ... enginn skortur á hugmyndaflugi þar.
Danshópurinn sýndi æðislegan dans sem heitir Leyndarmálið og vakti mikla hrifningu og strax þar á eftir sýndi starfsfólkið, ásamt eldri starfsmannabörnunum, leikritið um Hans og Grétu.
María lék nornina ógurlegu, Apríl var flott sem kústur nornarinnar og ekki var Dagbjört síðri sem kærasta kústsins. Alena lék fjársjóðinn ... mikið stuð og mikið hlegið. Starfsfólkið fær ekkert að vita fyrirfram um leikritið eða hlutverkið sem það á að leika, allt algjörlega óundirbúið og þess vegna enn fyndnara. Myndin er af Grétu, Hans og ógurlega pirrandi tré.
Kvikmyndagerðin sýndi gaman- og hryllingsstuttmyndina Hryllingsskógarferðin sem fjallar um átta systur, ömmuna, mömmuna, úlfinn sem hélt að hann væri hæna, ofvirka rottu og djöfla sem ræna öllum sem koma í skóginn. Amman endaði á því að redda málunum með miklum glæsibrag, enda óhrædd við djöflana og bjargaði öllum þeim sem þeir voru búnir að ræna sér til matar ... úúú.
Mögnuð lokakvöldvaka! Í kvöldkaffinu voru ávextir og einnig frostpinni. Síðan lokalestur framhaldssögunnar hjá hverjum hópi og farið að sofa síðustu sumarbúðanóttina í bili. Gaman í sumarbúðum en líka gaman að koma heim.
Bestu kveðjur frá Kleppjárnsreykjum með þakklæti fyrir frábæra viku.
Hér eru svo myndirnar:
http://sumarbudir.is/sumarbudir/t3d6.html
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Sumarbúðirnar Ævintýraland
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar