16.6.2012 | 01:08
Mögnuð lokakvöldvaka
Enn og aftur var frábært veður í morgun. Börnin drifu sig í morgunmat og síðan voru námskeiðin. Kvikmyndagerðarhópurinn lauk við tökur á spennumyndinni, það var sprellað svolítið í íþróttahúsinu, danshópurinn æfði dansinn og grímugerðarhópurinn látbragðsleikritið. Mikið fjör og mikið gaman.
Fínasti pastaréttur var á boðstólum í hádeginu og síðan tóku hádegisfundirnir við hjá hópunum. Umræðuefnið á þeim var hvað það skiptir miklu máli að koma vel fram við aðra og láta ekki hafa of mikil áhrif á sig. Börnin drógu miða með jákvæðum staðhæfingum og það vakti mikla lukku. Umræður voru uppbyggilegar og alveg rosalega skemmtilegar.
------------- --------------- ---------------
Þótt námskeiðin hafi verið í morgun voru þau haldin aftur eftir hádegið - jú, lokakvöldvakan í kvöld og mikið þurfti að æfa til að allt gengu eins og áætlað var. Svo var bara komið að kaffitímanum og þar bauð kokkasumarbúðalandsliðið upp á dásamlega skúffuköku og einnig stórgott tekex með heimalöguðu marmelaði og mjólk var drukkin með.
Síðan hófst vikulegur liður sem kallast ruslatínsla. Sjálfboðaliðar úr hópi barnanna gengu um svæðið og tíndu allt það rusl sem þau sáu og sópuðu svo allar stéttar af mikilli vandvirkni. Á eftir völdu þau sér verðlaun úr sérstökum verðlaunakassa. Aðrir léku sér úti í góða veðrinu eða fóru út í íþróttahús.
Og svo var komið að kassabílarallíinu. Þátttakendur voru margir og liðin alls 6 talsins. Í fyrsta sæti urðu Rakel Sandra og tvíburasysturnar Birna og Nadía. Þegar verðlaunaafhendingin fór fram var veitt óvænt viðurkenning og verðlaun tveimur systrum sem hafa verið einstaklega góðar hvor við aðra og áttu þetta meira en skilið.
Lokakvöldvakan færðist sífellt nær en fyrst var það hátíðarkvöldverðurinn, síðasti kvöldmaturinn í Ævintýralandi. Eldhúsið töfraði fram gómsæta hamborgara með öllu, franskar og gos og það ríkti mikil hátíð í höllinni. Sannarlega góð byrjun á mögnuðu kvöldi.
Og loks rann stóra stundin upp - lokakvöldvakan!!! Nú skyldi afrakstur námskeiðanna sýndur! Og hvílíkur afrakstur.
Grímugerðar- og myndlistarhópurinn sýndi látbragðsleikrit um blóm, Jón spæjó, Spiderman og aðstoðina hans, fjólubláa karlinn úr Star Wars og uppvakning. Það var barist og bjargað til skiptis og svo enduðu allir sem vinir og dönsuðu saman. Afskaplega flott látbragðsleikrit eftir börnin sem unnu mjög vel úr hugmyndum sínum. Sjá mynd hér til hægri. >
Kvikmyndagerðarhópurinn sýndi mjög flottan dans sem vakti mikla lukku.
Sjá mynd hér til vinstri.
-------------- ooOoo------------
Síðan kom að leikriti starfsfólksins ... sem dró sér miða úr hatti sem innihélt hlutverkið í leikriti sem það vissi ekki hvert var, allir þurftu að leika af fingrum fram og það var svo fyndið. Leikritið var Rauðhetta! Hún átti ömmu sem var á gelgjunni eins og Rauðhetta, tveir veiðimenn komu við sögu og þeir rifust í sífellu. Úlfurinn var rosalega vondur. Hluti starfsfólk lenti í að leika skæri, grjót, nál og tvinna og það vakti mikla lukku.
Gera þurfti stutt hlé á dagskránni til að fá sér ávexti og síðan var glaðningur á eftir, frostpinni sem féll heldur betur í kramið hjá börnunum.
Síðasta atriði kvöldsins var bíómyndin, stuttmyndin sjálf. Hún heitir Afi og amma segja sögu. Í stuttu máli fjallaði hún um fjölda barna sem sátu á gólfinu fyrir framan ömmu og afa og báðu þau um að segja sér sögu ... um mótorhjólagengi, ninjur, löggur, kúreka, prinsessur, einhyrninga og kokk. Afi og amma urðu við þessu og það var ýmislegt sem gerðist ... bankarán, bardagi og handtaka í eldhúsinu þar sem kokkurinn (brúða) stóð við pottana og var að elda. Algjörlega frábær mynd sem allir skemmtu sér konunglega yfir.
Þegar börnin voru komin upp í rúm fengu þau viðurkenningu frá umsjónarmanni sínum og einnig kom í ljós hver sigraði í plúsakeppninni.
Börnin voru fljót að sofna en áður höfðu þau mörg á orði hvað vikan hefði liðið hratt og ótrúlegt að þau færu heim á morgun! Það var samt gaman og mikil tilhlökkun í gangi.
Á morgun hefst dagurinn eins og venjulega á morgunverðarhlaðborðinu stórkostlega. Síðan verður farið í að pakka niður með góðri hjálp umsjónarmannanna. Börnin fá að horfa á bíómyndina aftur og síðan verður farið út í íþróttahús í leiki. Í hádegismat verður kakósúpa og auðvitað tvíbökur með. Síðan er það bara rútan sem leggur af stað kl. 13.00 frá Kleppjárnsreykjum og áætlaður komutími í Perluna í Reykjavík er kl. 14.45.
Við þökkum þessum frábæra hópi innilega fyrir skemmtilega viku!
Hlekkur á myndir frá deginum er hér:
http://sumarbudir.is/sumarbudir/2012_T1D5.html#grid
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2012 | 23:52
Ævintýrabarkar kvöldsins
Enn einn frábæri sólardagurinn, veðrið hefur verið yndislegt í dag.
Þegar börnin vöknuðu drifu þau sig (klædd og með burstaðar tennur og greitt hár) í matsalinn þar sem morgunverðarhlaðborðið beið eftir þeim. Hafragrautur, súrmjólk, seríos, kornflögur, ristað brauð með osti og heimalöguðu marmelaði ... svo fátt eitt sé talið. Gott að geta valið sér það sem manni finnst best.
Þá var bara haldið út í sumarbúðalífið ljúfa og sitt af hverju var í boði að vanda. Einhverjir völdu að fara í sund, aðrir fóru á kertagerðarnámskeið og útisvæðið skemmtilega var opið líka. Þau börn sem skráðu sig í karókíkeppnina æfðu, enda var keppnin nú í kvöld.
Við höfum dáðst mikið að henni Nadíu sem varð fyrir því óhappi að handleggsbrotna skömmu áður en hún kom í sumarbúðirnar en hún lætur ekkert stoppa sig þrátt fyrir það. Í gærkvöldi, rétt áður en hún fór að sofa, var gifsið klippt af henni samkvæmt beiðni foreldra og afans sem er læknir. Mikið fannst Nadíu gott að losna við það, hún fór í sund í morgun en ætlar samt að fara varlega næstu dagana. Flest börnin fóru í sund með henni en karókíbörnin kusu þó að æfa og æfa og æfa ...
Kertagerðin var stórskemmtileg en hún fer þannig fram að börnin velja sér bláskel sem umsjónarmaður hellir vaxi varlega í og auðvitað er kveikur settur í miðjuna. Eftir að vaxið hefur storknað er það skreytt eftir því sem ímyndunaraflið býður. Mjög flott kertin í morgun. Útisvæðið var vinsælt líka og mörg kusu að fara í smástund inn á herbergin fyrir matinn.
Grjónagrauturinn var borðaður af mikilli lyst og einnig ávextirnir sem voru í eftirrétt.
Námskeiðin voru síðan haldin eftir hádegisfundinn og í kaffinu var boðið upp á ævintýraköku (sandköku) og vöffluafganga með súkkulaði, einnig brauð með kæfu og mjólk með. Allt borðað upp til agna.
Íþróttahúsið varð fyrir valinu hjá flestum eftir kaffi en nokkur börn úr kvikmyndagerð æfðu dans sem verður í myndinni. Hvernig mynd verður þetta eiginlega? Dans- og söngvamynd með spennuívafi? Eða spennumynd um dansskóla? Svo voru einhverjir í Spilaborg þar sem Ellen kenndi þeim skemmtilegt spil. Nokkrir fóru að herða skrúfur og undirbúa kassabílana fyrir rallíið á morgun.
Rétt fyrir kvöldmat skiptu börnin um föt ... aðallega keppendur kvöldsins. Kvöldmaturinn var einstaklega gómsætur! Glænýr fiskur, steiktur, með hrísgrjónum og karrísósu, tómatsósu fyrir þá voguðu ...
Svo var haldið út í íþróttahús þar sem Söngvara- og hæfileikakeppnin Ævintýrabarkinn 2012-01 fór fram ...
Systurnar Adela og Birgitta sungu lagið Blár ópal, systurnar Askja Ísabel og Ynja Mörk dönsuðu við lagið Turn me on. Eva Huld og Ólavía Guðrún sungu Moves like Jagger. Ólavía Guðrún söng lagið Bíóstjarnan mín. Og svo var hópatriði með Karen Örnu, Hrafntinnu Máneyju, Öldu Ósk og Sigríði Berglind, ásamt fyrrtöldum listakonum.
Ekki var auðvelt fyrir dómnefnd að gera upp á milli, svo flott var þetta allt saman, en þegar búið var að telja stigin kom í ljós að Eva Huld og Ólavía Guðrún urðu í efsta sæti með lagið Moves like Jagger. Í öðru sæti voru dansararnir Askja og Ynja og í því þriðja Adela og Birgitta sem sungu Blár ópal, jöfn að stigum við þær var Ólavía Guðrún sem söng Bíóstjarnan mín. Allir fengu viðurkenningarskjöl og efstu sætin smáverðlaun.
Þetta var sérlega flott kvöld - og atriðin hvert öðru betra. Góður endir á góðum degi. Svo var það bara kvöldkaffið, kvöldsagan og draumalandið.
Myndir frá deginum eru á heimasíðunni, www.sumarbudir.is, myndir - dagur 4.
Bloggar | Breytt 15.6.2012 kl. 08:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.6.2012 | 14:42
Vöffludagurinn græni ...
Dagur 3 var aðeins öðruvísi en hinir. Námskeiðin voru fyrir hádegi og eftir matinn, núðlusúpu, núðlur, brauð með eggi og kæfu, ásamt vatni í miklu magni, hófst húllumhædagurinn.
Fyrst var hádegisfundur með umsjónarmönnunum en svo var farið í fánaleikinn. Skipt var í tvö lið, Martröð og Draum og sigraði það fyrrnefnda, alls ekkert léttilega þó.
Fram að kaffi var margt um að vera; sápukúlusprengikeppni, sólbað, krítað á stéttina, boltaleikir og önnur dásamlegheit.
Í kaffinu var boðið upp á vöfflur með súkkulaði ... og rjóma sem var litaður grænn í stíl við daginn. Þemaliturinn var nefnilega grænn og allir voru í einhverju grænu. Í miðju vöfflusmjatti kom algjört steypiregn en dagskráin var bara inni þar til stytti upp eftir um tvo tíma. Gott fyrir gróðurinn.
Eftirmiðdagsskemmtunin var heldur betur fjölbreytt. Það var skartgripagerð, andlitsmálun, tattú, bandfléttur, keila og zumba (í Wii) ... og svo mætti heil spákona á svæðið, ég legg ekki meira á ykkur. Sú heitir Jósefína Potter og þykir nokkuð sérstök. Börnin settust hjá henni og fengu að heyra sitt lítið af hverju skemmtilegt. Spenningurinn var mikill að vita HVER þessi spákona væri og voru ýmsir starfsmenn nefndir til sögunnar en það mál er enn ekki upplýst ...
Svo var allt í einu komið að kvöldmatnum - pylsupartíi, takk fyrir. Það hefði mátt halda að engar rjómavöfflur hefðu verið á boðstólum í kaffinu eða að börnin hefðu bara rétt nartað í þær ... svo vel tóku þau til matar síns, þessar elskur. Það var líka gott að fá að skola því niður með gosi.
Draugaleikur var eftir matinn, keppni milli hópa, og margar hetjurnar sem létu sig hafa það að hlaupa í gegnum íþróttahúsið í nánast myrkri, í gegnum allskyns þrautaleiðir, sækja glóstikk og fljúga síðan út á ljóshraða. Þau sem vildu vernd töluðu bara við sumarbúðastjórann sem fór með þeim.
Gott var að skreppa í sund til að kæla sig niður, aðrir fóru í heita pottinn til að róa sig niður ... en svo kom fljótlega í ljós að draugarnir ógurlegu voru bara Gummi, Apríl og Árni Páll. Þá var nú hlegið.
Í stað þess að fara beint í matsalinn og síðan að sofa var það fyrst bíósalurinn þar sem börnin fengu að sjá tvær eldri stuttmyndir eftir sumarbúðabörn og popp og safi gerði bíósýninguna enn skemmtilegri.
Svo var sofnað vært og rótt.
Sápukúlusprengikeppnin: Steinar Dúi
Keila: Rakel Sandra
Draugaleikurinn: Krossfiskar
P.s. Myndir frá deginum eru á
www.sumarbudir.is - myndir - dagur 3.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2012 | 22:38
Forvarnaleikrit, diskó og dásamlegur kvöldmatur
Nýr dagur rann upp, bjartur og fagur. Sólin skein eins og hún fengi borgað fyrir það. Fyrsti í rumski var þó ekki fyrr en klukkan 8.15, enda vel sofið eftir skemmtilegheit gærdagsins. Sigrún næturvörður getur ekki hætt að hrósa börnunum sem öll fengu broskarl í kladdann í morgun ...
Eftir leiki og fjör, sund og sólbað, fóru börnin út í íþróttahús en þar lék starfsfólkið leikrit fyrir þau, forvarnaleikrit í léttum og skemmtilegum dúr en með alvarlegan undirtón. Ping og Pong fóru á kostum og einnig Sing (góð ráð) og Song (slæm ráð).
Börnin tóku virkan þátt úr salnum og ekkert þeirra taldi rétt að Apríl færi upp í bíl hjá ókunnuga manninum þótt hann bæði hana að hjálpa sér með litla hvolpa. Sing spurði hreinlega hvar fjölskylda mannsins væri og hvers vegna hún hjálpaði honum ekki ... Sing og Song eru sko raddirnar í höfði Apríl, önnur leiðbeindi henni og peppaði hana upp en hin sagði henni að hún gæti ekkert, eins og t.d. í stærðfræðiprófi. Svo þegar Apríl fór í tölvuna og fékk vinarbeiðni á Facebook frá sætum en alveg ókunnugum strák sagði Sing henni að adda honum ekki, Song hélt nú að það væri óhætt en sem betur fer hlustaði Apríl á Sing.




Á morgun verður algjör dúndurdagur (eins og þessi og gærdagurinn hafi ekki verið það ...). Sjálfur húllumhædagurinn - en þá ríkir sannnkölluð 17. júní-stemning. Litur dagsins verður grænn! Meira að segja rjóminn á vöfflunum í kaffinu verður litaður með grænum lit (góðum matarlit frá mömmur.is) en Ævintýralandsvöfflurnar eru löngu orðnar landsfrægar, með súkkulaðiglassúr og rjóma ... auðvitað sultu fyrir þá sem vilja ... en flestir velja súkkulaðið undir rjómann. Meira um þessa dýrð á morgun!
Myndir frá degi 2 (og týndu myndirnar frá degi 1) eru á heimasíðunni, sumarbudir.is, en hér er beinn hlekkur á dag 2, gjörið þið svo vel: http://sumarbudir.is/sumarbudir/2012_T1D2.html
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2012 | 23:59
Gjörsamlega frábær fyrsti dagur!
Þá er starfsemi sumarsins hafin, jibbí! Hópur 1 á tímabili 1 mætti í morgun.
Strax um tíuleytið byrjuðu fyrstu börnin að tínast á staðinn og þegar rútan kom um ellefuleytið varð heldur betur fjör. Glampandi sólskin, logn og blíða tók á móti fyrsta hóp sumarsins, ásamt starfsfólkinu auðvitað.
Umsjónarmenn hvers hóps (aldursskiptir) aðstoðuðu börnin með farangurinn og sýndu herbergin og aðstöðuna. Sýningarrúntur um svæðið var næstur á dagskrá, hóparnir skoðuðu vel umhverfið og húsakynnin öll. Íþróttahúsið féll vel í kramið, helst hefðu börnin viljað snæða hádegisverðinn þar en mötuneytið var ekki svo slæmt, eiginlega bara mjög gott. Kokkurinn káti hafði galdrað fram dýrindismáltíð, pastarétt og heimabakaðar hvítlauksbollur sem börnin borðuðu með góðri lyst. Fyrir mat höfðu þau komið sér vel fyrir, gerðu kósí hjá sér, reyndar á ljóshraða því mikið lá á að leika sér - bæði úti og inni, aðallega úti þó.
Skömmu áður en umsjónarmennirnir komu til að sækja börnin fyrir kynninguna sem átti að fara fram klukkan eitt í íþróttahúsinu náði sumarbúðastjórinn að spjalla svolítið við þau ... og fá þau til að hjálpa sér við pínulítið prakkarastrik. Þau máttu alls ekki segja umsjónarmönnunum neitt og svo hófst kynningin:
Sumarbúðastjórinn byrjaði að vanda á því að bjóða börnin innilega, hjartanlega, frábærlega velkomin og svo þegar hún sagði: Ég heiti ... þá sögðu öll börnin hátt í kór: Svanhildur! og sumarbúðastjóranum brá ofboðslega (eða þannig) en hélt áfram: Og ég er ... SUMARBÚÐASTJÓRINN, æptu börnin. Það nánast leið yfir umsjónarmennina, svo hissa urðu þeir, voru eins og eitt stórt spurningamerki í framan. Hvernig vissu börnin??? Þetta sló í gegn og mikið var hlegið.
Síðan kynntu starfsmenn sig og þar á eftir var sagt frá námskeiðunum frábæru - en börnin velja á milli nokkurra námskeiða sem þau eru á í tvo tíma á dag allt tímabilið. Flest börnin völdu sér kvikmyndagerð og næstvinsælasta námskeiðið var listaverkagerð. Öll verða börnin mikið í íþróttum og sundi - og það verður svo margt fleira í boði ...
Eftir kynninguna var haldið á námskeiðin og mikill spenningur í gangi. Það verða gerð ýmis listaverk þessa vikuna, meðal annars heil bíómynd, ja, allavega stuttmynd. Börnin semja handrit sjálf, skipa í hlutverk, velja búninga og leika af hjartans lyst. Á lokakvöldvöku er afraksturinn sýndur og kemur í ljós hvað verður þegar nær dregur; leikur, dans, íþróttir, bíómynd, myndlist og hvaðeina. Algjör stórhátíð.
Ekki varð dagurinn lakari þegar kom að kaffinu ... þar var heimabökuð skúffukaka á boðstólum og í eftirkaffi melónubitar eins og hver og einn gat í sig látið. Þetta er bara rétt upphafið.
Síðan var skráning og lagaval fyrir karókókeppnina. Útisvæðið var opið og einnig Spilaborg inni. Mikið flakkað á milli, enda ógurlega gaman að gera sem flest fram að mat. Spilaborg er snilldarafþreyingarkósíogfjörstaður Ævintýralands. Leikföng, bækur, púsl, spil, borðtennis og sitthvað fleira. Allir fundu eitthvað við sitt hæfi, auðvitað. Gott var að hamast svolítið útí í smástund og hvíla sig svo á milli úti eða inni.
Kassabílarnir slógu í gegn og allir vildu prófa. Nokkur kappaksturslið voru stofnuð, enda verður rallí á föstudaginn. Það verður án efa miklu meira spennandi en Formúlan ...
Hárgreiðslukeppnin er alltaf sívinsæl. Hér koma úrslitin:
1. sæti: Rakel Sandra greiddi og Sigríður Berglind var módel
2. sæti: Ynja Mörk greiddi og Adela og Birgitta var módel
3. sæti: Karen Ósk greiddi og Alda Ósk var módel
3. sæti: Ólavía Guðrún greiddi og Eva Huld var módel
Krúttlegasta greiðslan: Linda og Karen Arna greiddu og Birna var módel
Sniðugasta greiðslan: Askja Ísabel greiddi og Hrafntinna Máney var módel
Í kvöldmatnum var boðið upp á grjónagraut sem börnin elska og með honum sporðrenndu börnin ábyggilega hátt í tonni af ávöxtum.Kvölddagskráin reyndi vel á börnin en hún byrjaði með brennókeppni í íþróttahúsinu, hópar gegn hópum, allir mjög jafnir og allir unnu alla.
Síðan var boðið upp á sund fyrir þá sem það vildu og á eftir var í boði enn ein máltíðin, eða kvöldkaffið, enda þarf maður eldsneyti til að halda sér gangandi. Yfirleitt eru ávextir í kvöldkaffinu en líka stundum brauð og safi eins og var nú í kvöld.
Þreytt, uppgefin, útkeyrð en alsæl börn yfirgáfu matsalinn og héldu til koju. Á meðan augnlokin þyngdust hlustuðu þau á sögu sem umsjónarmaðurinn þeirra las fyrir þau.
Þetta var bráðskemmtilegur dagur og börnin eru alveg frábær, mjög skemmtilegur og góður hópur, ljúf og kurteis börn.
Á morgun kemur nýr dagur, fullur af ævintýrum og leikjum og að sjálfsögðu verður allt um það hér - og fleiri myndir. Hérna fyrir neðan er slóð að nokkrum myndum sem voru teknar við sundlaugina í kvöld, myndunum fjölgar ... um leið og týnda myndavélin finnst:
http://sumarbudir.is/sumarbudir/2012_T1D1.html#8
Bloggar | Breytt 12.6.2012 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Sumarbúðirnar Ævintýraland
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar